Efnagreining ehf. er efnamælingafyrirtæki staðsett á Akranesi. Við sinnum efna- og örverufræðigreiningum fyrir bændur, fyrirtæki, fæðubótaframleiðendur, sprotafyrirtæki, hestaeigendur, golfvelli, íþróttavelli og áhugafólk í garðrækt.
Þjónusta og sérhæfing
Helstu greiningar okkar eru stein- og snefilefnamælingar, NIR-greiningar á heyi, orkuefnamælingar, sýrustigsmælingar, leiðnimælingar og örverumælingar.
Stofnendur
Elísabet Axelsdóttir
Eigandi og framkvæmdastjóri
Búfræðingur frá Hvanneyri og lærði einnig við Viðskipta- og tölvuskólann. Var bústjóri í 10 ár, með starfsmannamál og bókhald á sinni könnu. Vann við efnagreiningar í 13 ár á Rannsóknastofu Landbúnaðarháskóla Íslands.
Arngrímur Thorlacius
Dósent, efnagreiningasérfræðingur
Efnagreiningasérfræðingur, menntaður í Reykjavík, Kaupmannahöfn og Bergen. Sérgrein hans eru snefilefnamælingar. Hefur unnið við efnagreiningar mestan hluta starfsævinnar.
Saga
Efnagreining ehf. var fyrst með aðsetur hjá Bændasamtökum Íslands í Gömlu nautastöðinni. Sumarið 2020 fluttist starfsemin á Akranes og hófst þar í september 2020.