Senda sýni

Veldu sýnitegund hér fyrir neðan til að sjá hvernig á að taka, pakka og senda sýnið. Hafðu samband ef þú ert óviss um sýnatöku eða hvaða greiningu þú þarft.

  1. Veldu sýnitegund

    Finndu leiðbeiningarnar fyrir sýnið þitt hér fyrir neðan.

  2. Pakkaðu og merktu

    Veldu réttar umbúðir og láttu upplýsingar um sendanda og greiningu fylgja.

  3. Sendu eða komdu með sýnið

    Komdu með sýnið til okkar eða sendu það í pósti.

Leiðbeiningar eftir sýnitegund

Hey og korn

Um 200 g af heyi duga yfirleitt. Ef heyið er vel þurrt má sýnið vera nær 100 g. Sömu leiðbeiningar gilda um korn.

Settu sýnið í poka og lokaðu vel. Ef þú sendir sýnið í pósti skaltu setja pokann í umslag.

Láttu fylgja upplýsingar um sendanda og hvaða greiningu þú óskar eftir. Sjá upplýsingalistann hér fyrir neðan.

Dæmi um pakkað sýni

Jarðvegur

Taktu sýni úr efstu 10 cm jarðvegsins. Stingdu niður með stunguskóflu á nokkrum stöðum og taktu lítið magn af hverjum stað. Fjarlægðu sem mest af rótum og allt sem vex ofan jarðvegsins. Um 200 g duga.

Settu sýnið í lokaðan poka og í umslag ef það er sent í pósti.

Þessar leiðbeiningar nýtast til dæmis fyrir garða, golfvelli og fótboltavelli. Fyrir bændur sér RML yfirleitt um sýnatökuna með jarðvegsbor og notar sýnapoka frá Efnagreiningu.

Dæmi um pakkað sýni

Mykja og sauðatað

Settu fljótandi mykju í brúsa með góðum tappa og lokaðu vandlega. Ekki þarf að senda heilan 5 lítra brúsa. Hafðu samband ef þú ert óviss um magn eða umbúðir.

Þurrari sýni, svo sem sauðatað, má setja í box með góðu loki. Þar duga 0,5–1 kg.

Sérstaklega mikilvægt er að umbúðir séu vel lokaðar við sendingu.

Dæmi um pakkað sýni

Molta

Pakkaðu moltusýni í lokaðan poka og settu í umslag ef það er sent í pósti, eins og hey- og jarðvegssýni.

Hvaða greiningar henta fer eftir því hvað þú vilt fá mælt. Molta getur farið í greiningar sem einnig eru notaðar fyrir hey eða jarðveg, eða til dæmis mælingar á þungmálmum og öðrum aðskotaefnum. Hafðu samband ef þú þarft aðstoð við val á greiningu.

Dæmi um pakkað sýni

Vatn

Hægt er að mæla helstu frumefni, heildarfjölda baktería og E. coli í vatni. Hafðu samband um þá greiningu sem þú þarft og hvernig best er að taka sýnið.

Vanda þarf sýnatökuna. Notaðu þvagsýnaglas sem fæst í apóteki og komdu sýninu sem fyrst til greiningar. Geymdu það í ísskáp fram að afhendingu og ekki lengur en 24 klukkustundir.

Dæmi um pakkað sýni

Önnur sýni

Fyrir önnur sýni skaltu hafa samband um magn og umbúðir áður en þú sendir.

Dæmi um pakkað sýni

Þetta þarf að fylgja sýninu

  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • Netfang
  • Hvaða greiningu er óskað eftir

Sending eða afhending

Þú getur komið með sýnið til okkar eða sent það í pósti. Lokaðu umbúðunum vel og fylgdu leiðbeiningunum fyrir viðkomandi sýnitegund. Við skráningu póstsendingar þarf að taka fram að sýnið verði sótt á pósthúsið.

Efnagreining ehf. Lækjarflói 10 a 300 Akranes